Um skólann
Velkomin á heimasíðu
Foldaskóla
Foldaskóli er heildstæður grunnskóli og stendur við Logafold 1 í Reykjavík. Nemendur eru um 500 og eru að jafnaði tvær bekkjardeildir í árgangi 1. – 7. bekkjar en fjórar í 8. – 10. bekk. Í Foldaskóla er leitast við að sníða skólastarfið í samræmi við eðli og þarfir nemenda. Stuðlað er að alhliða þroska og menntun hvers og eins og stutt er við jákvæða hegðun nemenda.
Við skólann er starfrækt sérdeild fyrir einhverfa sem ætluð er börnum með einhverfugreiningu. Einkunnarorð skólans eru SIÐPRÝÐI – MENNTUN – SÁLARHEILL. Framtíðarsýn skólans er að allir finni sig vera á heimavelli.
SAGA SKÓLANS
Skólinn tók til starfa haustið 1985 en byggingarframkvæmdum lauk 1991. Skólinn var dæmigerður „frumbyggja” skóli í nýju hverfi. Farið var af stað í hálfkláruðu húsnæði þar sem öllu ægði saman, iðnaðarmönnum, tækjum og tólum, kennurum og nemendum.
Nemendum fjölgaði hratt og urðu flestir árið 1990 þegar nemendafjöldi fór rétt yfir 1.200 og þá að meðtöldu útibúi í Hamrahverfi. Síðan hefur nemendum fækkað jafnt og þétt eftir því sem hverfið hefur elst. Skólaárið 2012-2013 var Foldaskóli gerður að safnskóla fyrir unglinga í Hamra-Húsa og Foldahverfi. Við sama tækifæri fluttist sérdeild fyrir einhverfa úr Harmraskóla í Foldaskóla. Skólaárið 2019-2020 eru nemendur um 500 talsins.
Húsnæði skólans er að stofni til þrjár einingar eða sérstæð hús með tengibyggingu á milli. Vorið 2001 var tekin fyrsta skóflustunga að viðbyggingu þar sem komið var fyrir sérgreinastofum auk íþróttahúss. Kennslustofurnar (690 m2) voru teknar í notkun haustið 2002 um leið og skólinn var einsettur ásamt íþróttahúsi, sem er 12 x 24 m og 620 m2 með búningsklefum. Þá var nýtt mötuneytiseldhús tekið í notkun haustið 2003.
Skólinn var móðurskóli í nýsköpun frá árinu 1998 til 2005 en það er hámarkstími slíkra verkefna. Kennsla í nýsköpun var þá fastur liður á stundaskrá nemenda í 4.-7. bekk.
Foldaskóli er grænfánaskóli síðan 2006 og heilsueflandi skóli frá 2010.
Samstarf um tónlistarkennslu er við Tónlistarskólann í Grafarvogi og Tónskóla Hörpunnar. Kennsla getur farið fram í skólanum á skólatíma í samvinnu við foreldra, nemendur og kennara. Skólahljómsveit Grafarvogs annast hljóðfærakennslu í skólanum en hefur aðsetur í Húsaskóla.
Í húsnæði skólans rekur Gufunesbær (ÍTR) frístundaheimilið Regnbogaland, fyrir nemendur 1. – 4. bekkjar og félagsmiðstöðina Fjörgyn. Einnig er rekið tómstundastarf fyrir nemendur í 5. – 7. bekk eftir skóla ákveðna daga vikunnar.
Útilistaverk á hringtorgi skólans heitir Foldagná (1993) og er eftir Örn Þorsteinsson.
Skólastjóri Foldaskóla frá ágúst 2019 er Kristrún Guðjónsdóttir
Fyrrum skólastjórar skólans eru:
Arnfinnur Jónsson (1985-1992),
Ragnar Gíslason (1992-2002)
Kristinn Breiðfjörð Guðmundsson (2002-2016)
Ágúst Ólason (2016-2017)
Skúli Kristjánsson (2017-2018)
Bára Jóhannsdóttir (2018-2019)
Kristrún Guðjónsdóttir (2019- )