Valgreinar
Samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla frá 2011 er miðað við að tímafjöldi nemenda sé 37 stundir á viku og er frjálst val í 8. bekk tvær stundir en sjö í 9. og 10. bekk. . Mikið úrval er í frjálsu vali. Í boði eru m.a. nokkrir framhaldsskólaáfangar sem kenndir eru í samráði við framhaldsskólana. Þessir áfangar eru ýmist kenndir í viðkomandi framhaldsskóla eða í fjarnámi.
Að vori velja nemendur í 7. – 9. bekk valgreinar af valgreinalista. Nemendur velja greinar til vara ef einhver grein fellur niður sökum fámennis, áreksturs í stundatöflu o. þ.u.l. Valgreinalisti getur breyst milli ára með tilliti til þeirra starfsmanna sem skólinn hefur á sínum snærum hverju sinni.
Námsvalið er rafrænt og nemendur eiga að velja í samráði við forráðamenn sína.
Hér fyrir neðan eru tenglar sem vísa beint á rafrænt val hvers árgangar.
Munið að velja fyrir þann árgang sem þið verðið í á næsta ári.
Valbæklingur 2020-2021 (á PDF formi)