Vetrarfrí 22. og 23. febrúar

Mánudaginn 22. og þriðjudaginn 23. febrúar verður vetrarfrí í grunnskólum Reykjavíkur. Nemendur mæti aftur í skóla- og frístundastarf miðvikudaginn 24. febrúar. Fjölbreytt dagskrá er í boði fyrir börn og fjölskyldur í frístundamiðstöðvum og menningarstofnunum borgarinnar í vetrarfríinu og víða endurgjaldslaus fræðsla og skemmtun.
Fjölbreytt dagskrá er í boði fyrir börn og fjölskyldur í frístundamiðstöðvum og menningarstofnunum borgarinnar í vetrarfríinu og víða endurgjaldslaus fræðsla og skemmtun.
Hægt er að kynna sér allt sem í boði er fyrir börn og fullorðna á vefnum Vetrarleikir í Reykjavík – sem einnig er á ensku.
Njótum samveru í vetrarfríinu!